Erlent

Banvænn vírus berst milli manna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi segjast hafa fundið sterkustu vísbendingu til þessa um að nýr banvænn öndunarsjúkdómur geti borist á milli manna.

Sjúkdómurinn er sagður svipaður hinum banvæna HABL-vírus, heilkennum alvarlegrar bráðrar lungnabólgu. Í 4-5 prósent tilfella leiðir lungnabólgan til dauða.

Þau tilfelli sýkingar sem þekkjast eru talin mega rekja til snertingar við dýr. Hins vegar er mun alvarlegra mál ef vírusinn dreifir sér á milli fólks. Einn maður í Bretlandi er talinn hafa smitast af ættingja sínum.

Yfirvöld segja að almenningi í Bretlandi stafi lítil ógn af vírusnum enn sem komið er.

Ellefu tilfelli hafa komið upp um allan heim. Vírusinn veldur lungnabólgu og leiðir stundum til nýrnabilunar. Fimm þessara ellefu hafa látið lífið af völdum vírusins.

Nýjasta tilfellið er það þriðja sem kemur upp í Bretlandi. Í því fyrsta hafði sjúklingurinn dvalið í Katar en í hinu var ferðalag til Mið-Austurlanda og Pakistan talin orsökin.

Talið er að sjúklingurinn sem dvaldist í Mið-Austurlöndum hafi smitað náinn ættingja sinn. Teikn hafa verið á lofti þess efnis að vírusinn hafi borist manna á milli í Mið-Austurlöndum en það hefur ekki verið sannað.

Nánari umfjöllun má sjá á vef BBC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×