Erlent

Nær 500 manns slasaðir eftir loftsteinasprengingar

Tala slasaðra eftir loftsteinasprengingar í grennd við þrjár borgir í Úralfjöllunum í Rússlandi fer stöðugt hækkandi. Nú er talið að allt að 500 manns hafi slasast en ekki er vitað til þess að neinn hafi farist.

Sprengingar þessar sköpuðu miklar þrýstibylgjur sem brutu rúður víða í borgunum en flestir þeirra sem slösuðust urðu fyrir glerbrotum úr þeim. Hátt í 400 manns hafa þurft að leita á slysavarðstofur vegna sára sinna.

Loftsteinaregn skall á svæðinu í gærdag og skapaði mikla skelfingu meðal borgarbúa í borgunum þremur þegar loftsteinar eða steinn sprungu í loft upp áður en þeir skullu til jarðar. Fólk lýsti áhrifunum sem samblandi af þrumum og jarðskjálfta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×