Erlent

Íslenskir fangar í Danmörku grunaðir um aðild að smygli

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fangaklefi.
Fangaklefi. Mynd/ Getty.
Tveir Íslendingar sem afplána nú fimm og átta ára fangelsi í Danmörku fyrir fimm kílóa e-töflusmygl eru líka grunaðir um aðild að stóra amfetamínsmyglinu sem danska lögreglan hefur rannsakað um nokkurra mánaða bil. Mennirnir eru 25 og 37 ára gamlir.

Á vef Ekstrabladet segir að átta Íslendingar hafi verið handteknir í september síðastliðnum, grunaðir um smygl á 34 kílóum af amfetamíni. Mennirnir tveir sem sitja í fangelsinu eru grunaðir um aðild að því máli. Nú leikur grunur á að þessi umsvifamikli hópur hafi einnig smyglað 27 kílóum af amfetamíni.

Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis hefur áður fjallað um þennan smyglhring en grunur leikur á að höfuðpaur hans sé Guðmundur Ingi Þóroddsson. Hann hefur áður verið dæmdur í fangelsi á Íslandi vegna fíkniefnamála




Fleiri fréttir

Sjá meira


×