Erlent

Andlit Ríkharðs III opinberað

Ríkharður III
Ríkharður III MYND/AP
Fornleifafræðingar við háskólann í Leicester hafa birt tölvugerða mynd af andliti Ríkharðs III, síðasta konungi Plantagenet ættarinnar í Englandi. Beinagrind Ríkharðs, sem féll í orrustunni við Bosworth árið 1485, fannst undir bílastæði í Leicester.

Sérfræðingarnir voru fullvissir um að líkamsleifarnar tilheyrðu Ríkharði en það var endanlega staðfest með DNA rannsókn. Nú hafa þeir birt ljósmynd af kónginum en hún fékkst með sneiðmyndatöku og mælingum á höfuðkúpu Ríkharðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×