Erlent

Ár snáksins að hefjast, boðar átök og erfiðleika í heiminum

Stjörnuspekingar og völvur í Asíu vara við komandi ári sem hefst um helgina og er ár snáksins í kínverska dagatalinu. Ár snáksins eru yfirleitt tímabil átaka og erfiðleika í heiminum.

Hinn þekkti Feng shui meistari Mak Ling-Ling í Hong Kong spáir því að að framan af árinu muni fjármálamarkaðir heimsins eiga góða og rólega daga en síðan breytist sú staða seinni part ársins og mikið uppnám muni ríkja frá þeim tíma. Þetta sé í stíl við hreyfingar snáksins sem eru snöggar og skarpar en jafnframt lævísar og undirförular.

Stjörnuspekistórmeistarinn Than Khoon Yong í Singapore segir að Evrópusambandið gæti klofnað í maí og að evran muni eiga í miklum erfiðleikum frá þeim tíma.

Þá spáir stjörnuspekingurinn Chow Hon-ming í Hong Kong því að til átaka eða stríðs komi milli Japana og Kínverja vegna umdeildra eyja í Kínahafi í maí.

Ár snáksins hafa yfirleitt verið örlagarík í sögunni. Nefna má árás al-kaída á World Trade Center í New York árið 2001 sem kostaði 3.000 manns lífið, mótmælin á Tiananmen torginu í Bejing árið 1989, árásina á Pearl Harbour árið 1941 og verðbréfahrunið á Wall Street árið 1929.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×