Erlent

Þú færð nostalgíu

Ef þú fæddist á milli áranna 1984 og 1988, ættir þú að hækka í botn og njóta nostalgíunar sem fylgir þessu myndbandi.

Á einni viku hefur verið horft á það yfir 8 milljón sinnum og er það eitt vinsælasta myndbandið á Facebook um þessar mundir.

Það er í raun í auglýsing fyrir Internet Explorer, sem vinnur nú að því hörðum höndum að fá gömlu viðskiptavini sína til baka sem hafa horfið yfir til Mozilla Firefox eða Google Chrome.

Hægt er að sjá myndbandið hér að ofan, það er mjög skemmtilegt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×