Erlent

Sex ára dreng enn haldið í neðanjarðarbyrgi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lögregluyfirvöld, þar með talin Alríkislögreglan (FBI), hefur girt af svæðið í nágrenni heimilis mannræningjans.
Lögregluyfirvöld, þar með talin Alríkislögreglan (FBI), hefur girt af svæðið í nágrenni heimilis mannræningjans. Myndir/AP
Í neðanjarðarbyrgi, einhvers staðar undir rauðum moldarveginum á myndinni hér til hliðar, hefur sex ára gömlum dreng verið haldið í gíslingu síðan á þriðjudag.

Drengnum var rænt af byssumanni síðdegis á þriðjudag úr skólabíl í Miland City í Alabama-fylki í Bandaríkjunum. Mannræninginn skaut um leið 66 ára gamlan bílstjóra skólabílsins til bana. Bandaríski vefmiðillinn CNN fjallar ítarlega um málið á vefsíðu sinni enda hefur það vakið mikla athygli vestanhafs sem víðar.

Í ljós hefur komið að mannræninginn átti að mæta fyrir rétt á miðvikudaginn vegna þess að nágranni hans sakar hann um að hafa reynt að skjóta sig. Þá á ræninginn að hafa unnið að gerð neðanjarðarbyrgisins að nóttu til í yfir ár.

Enginn virðist þó skilja hvers vegna mannræninginn ákvað að ræna þessum ákveðna dreng. Engar upplýsingar hafa verið gefnar um drenginn en fjölmiðlar vestanhafs hafa komist á snoðir um mannræningjann.

Gegndi herskyldu í Víetnam
SkólabíllinnMynd/AP
Ræninginn er talinn heita Jimmy Lee Dykes, 65 ára gamall uppgjafarhermaður sem þjónaði í Víetnam stríðinu, og starfaði sem vörubílsstjóri. Jimmy Davis, nágranni Dykes, segir hinn grunaða hafa byrjað að grafa holu stuttu eftir að hann flutti inn í hverfið.

Davis, sem starfar á næturna, segir í samtali við CNN að Dykes hafi grafið holuna aðra hverja nótt á milli klukkan tvö og þrjú í eitt og hálft ár. Hann hafi virðst vingjarnlegur og sagst vera að koma sér upp byrgi í tilfelli fellibyls eða storms.

Dykes hafi þó sýnt á sér aðra hlið þegar kerra, sem Davis hafði í eftirdragi, olli skemmdum á hraðahindrun sem Dykes hafði komið upp á götunni sem liggur á milli húsa mannanna. Dykes hafi orðið reiður, náð í byssu og skotið tveimur skotum í áttina að bifreið granna síns að því er Claudia Davis, móðir Jimmy Davis, segir.

Engan sakaði en sex mánaða gömul dóttir Claudiu Davis var farþegi í bílnum. Dykes átti að koma fyrir dóm vegna þessa máls í gær.

Engin tengsl á milli drengsins og ræningjans
Lögreglan hefur komið upp vegatálmum í hverfinu.Mynd/AP
Annar granni Dykes segir hann hafa barið hund hennar til dauða með blýröri og gortað sig af athæfinu við eiginmann hennar.

„Hann gerði það fullkomlega ljóst að fólk og dýr sem kæmi inn á landareign hans yrði drepið," segir Ronda Wilbur granni Dykes við CNN.

CNN fullyrðir að engin tengsl séu fyrir hendi á milli Dykes og sex ára gamla drengsins. Lögreglan hefur haft samskipti við Dykes í gegnum PVC rör sem liggur niður í byrgið. Litum og litabókum hefur verið komið til drengsins í gegnum rörið ásamt lyfjum sem hann þarf að taka daglega. Drengurinn tekur lyf vegna Asperges-heilkennis auk þess sem hann glímir við athyglisbrest.

Skólum í nágrenninu hefur verið lokað í þrjár vikur og íbúum í næstu húsum hefur tímabundið verið komið fyrir í öðru húsnæði. Blaðamannafundur var fyrirhugaður seint í gær en hann var blásinn af þar sem lögreglan sagði engin ný tíðindi vera af málinu.

Wally Olson, fógetinn í Dale-sýslu, sagði á blaðamannafundi í gærmorgun að hann hefði enga ástæðu til að telja að eitthvað amaði að drengnum.


Tengdar fréttir

Sex ára gömlum strák haldið í gíslingu

Maður vopnaður byssu fór um borð í skólabíl í Alabama-fylki í morgun, tók sex ára gamlan dreng í gíslingu og drap bílstjórann sem reyndi að bjarga stráknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×