Club bauð 50 milljónir í Eið Smára | Áhugi frá Torino Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. janúar 2013 09:30 Eiður Smári hefur skorað sex mörk fyrir Cercle Brugge í haust. Nordic Photos / AFP
Belgíska úrvalsdeildarfélagið bauð grannfélagi sínu, Cercle Brugge, rúmar 50 milljónir króna í Eið Smára Guðjohnsen. Tilboðinu var hafnað. Þetta kemur fram í belgíska blaðinu Het Nieuwsblad í dag. Þar er enn fremur fullyrt að yfirmaður knattspyrnumála hjá Club Brugge, Arnar Grétarsson, sé ekki búinn að gefast upp í þessu máli. Cercle Brugge er í erfiðri stöðu því í samningi Eiðs er klásúla um að honum sé frjálst að fara til annars félags án greiðslu þann 31. janúar næstkomandi - á lokadegi félagaskiptagluggans. Belgísk félög verða hins vegar að greiða fyrir hann. Cercle, sem er í neðsta sæti deildarinnar, er hins vegar í fjárhagskröggum og gæti því hugnast að fá pening fyrir Eið Smára - þó svo að hann komi frá erkifjendunum í Club. Club hefur einnig boðið leikmenn í skiptum fyrir Eið Smára - til að mynda Michael Almebäck, sænskan varnarmann, en án árangurs. Norðmaðurinn Tom Högli hefur einnig verið nefndur til sögunnar. Enn fremur er fullyrt að auk ástralska liðsins Perth Glory sé áhugi á Eiði Smára hjá ítalska úrvalsdeildarliðinu Torino en liðið er í þrettánda sæti deildarinnar. Þá er einnig sagt að Anderlecht - fyrrum félag Arnórs Guðjohnsen, föður Eiðs Smára - hafi átt góð samskipti við Cercle í gegnum tíðina og sé með leikmenn sem gætu hugnast síðarnefnda félaginu. Eiður Smári vildi ekki tjá sig við belgíska blaðið vegna málsins.
Fótbolti Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Handbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Felldi tár og sendi fingurkoss til himna Sport Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Fleiri fréttir Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Sveindís og stöllur unnu toppliðið Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Sjá meira