Michael Jordan getur ekki selt húsið sitt 17. desember 2013 08:15 mynd/nordicphotos/getty
Það gengur hvorki né rekur hjá körfuboltastjörnunni fyrrverandi Michael Jordan, að selja húsið sitt. Eignin er búin að vera í tvö ár á sölu án þess að viðundandi tilboð hafi borist og í gær var reynt að selja húsið á uppboði, án árangurs. Jordan vildi í upphafi fá um það bil þrjá og hálfan milljarð fyrir villuna, sem er að vonum glæsileg, en síðan lækkaði verðið niður í tvo og hálfan milljarð, en allt hefur komið fyrir ekki. Húsið, sem er í úthverfi Chicago borgar, þar sem Jordan gerði garðinn frægan á sínum tíma með NBA liðinu Chicago Bulls hentar nú reyndar ekki öllum. Það er samtals fimmþúsund og tvöhundruð fermetrar að flatarmáli. Í því eru níu svefnherbergi og fimmtán baðherbergi og bílskúrinn rúmar fjórtán bíla eða svo. Landareignin sjálf er um tveir hektarar. Rúsínan í pylsuendanum er síðan innanhúskörfuboltavöllur í fullri stærð. Sú rúsína er þó einmitt sögð standa í veginum fyrir því að húsið seljist, það séu ekki margir að leita sér að húsi með innbyggðum körfuboltavelli.
Mest lesið Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Er Trump að gefast upp á Pútín? Erlent Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Enski boltinn Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Erlent Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Sjá meira