Vinningurinn nýttur í baráttu eiginkonunnar við krabbamein 6. mars 2013 22:38
Körfuboltaáhugamaðurinn Heath Kufahl fagnaði ógurlega þegar skot hans frá miðju á NBA-leik á dögunum hafnaði í körfunni. Atvikið átti sér stað í hléinu á milli þriðja og fjórða leikhluta í viðureign Oklahoma City Thunder og Los Angeles Lakers í nótt. Eins og algengt er fékk einn áhorfandi að spreyta sig á skoti frá miðju og í boði voru 20 þúsund dalir eða vel á þriðju milljón íslenskra króna. Samkvæmt dagblaðinu Daily Oklahoman glímir eiginkona Kufahl, Jenni, við krabbamein og mun allur peningurinn fara í að standa straum af meðferðinni. Jenni Kufahl er sjö barna móðir og hörð barátta framundan hjá henni við sjúkdóminn banvæna. „Ég er reyndar stuðningsmaður Lakers," segir Kufahl sem klæddist treyju Oklahoma-liðsins en leikurinn fór fram í samnefndri borg. „Ekki segja neinum að ég hafi neyðst til þess að klæðast treyju Thunder-liðsins." Kufahl, sem er körfuboltaþjálfari við einkaskóla í úthverfi Oklahoma-borgar, varð fyrsti áhorfandinn til þess að hitta úr miðjuskotinu á leik liðsins frá 2011. Skotið má sjá hér fyrir neðan.
Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Fleiri fréttir Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Sjá meira