Milljónir dauðsfalla má rekja til saltneyslu 8. apríl 2013 08:19
Óhófleg saltneysla er margfalt hættulegri en ótæpileg sykurneysla ef marka má nýja bandaríska rannsókn. Rannsóknarniðurstöðurnar verða birtar á árlegum fundi Hjartaverndarsamtaka Bandaríkjanna í New Orleans í dag. Það er hópur vísindamanna hjá Harvard-háskóla sem rýnt hefur í saltneyslu Bandaríkjanna á síðustu árum. Að mati þeirra má rekja um tvær komma þrjár milljónir dauðsfalla á heimsvísu til ofneyslu salts. Sami rannsóknarhópur hafði áður rannsakað tengsl hjartasjúkdóma og neyslu sykraðra drykkja á borð við kók og pepsi. Slíkir drykkir eru taldir bera ábyrgð á dauða um tuttugu og fimm þúsund bandaríkjamanna á hverju ári. Tengsl salts og harta- og æðasjúkdóma hafa lengi verið rannsökuð en þessi nýja rannsókn tekur saman niðurstöður úr fyrri rannsóknum. Stjórnandi rannsóknarhópsins, doktor Darius Mozaraffarian, bendir á að neytendur geti auðveldlega hætt að drekka sykraða drykki. Það sé hins vegar mun erfiðara að forðast natríum eða salt, enda sé mikið af því í unnum matvörum og skyndibitum. Þar að auki séu það iðulega vinsælar vörur á borð við brauð og ost sem innihaldi of mikið salt. Vísindamennirnir vonast til að matvælaframleiðendum verði settar reglur um notkun salts í vörum sínum. Í millitíðinni er neytendum bent á að fylgjast vel með innihaldslýsingum.
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar eldflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Fleiri fréttir Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar eldflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Sjá meira