Pattstaða á nýja þinginu 26. febrúar 2013 23:45 Þúsundir manna mættu á hvern útifundinn á fætur öðrum í kosningabaráttunni og virtust njóta þess í botn að heyra grínistann úthúða stjórnmálamönnum. fréttablaðið/AP
Pattstaða er komin upp á ítalska þinginu eftir kosningarnar. Fimm stjörnu hreyfing grínistans Beppes Grillo virðist vart líkleg til að koma til bjargar. Ítalski grínistinn Beppe Grillo og félagar hans í Fimm stjörnu hreyfingunni nota orðið „stjórnmálamaður“ nánast eins og blótsyrði. Eftir þingkosningarnar á sunnudag og mánudag er hreyfingin komin með 109 þingmenn í fulltrúadeild ítalska þingsins og 54 þingmenn í öldungadeildinni. Þetta nýja en óútreiknanlega stjórnmálaafl féll í kramið hjá kjósendum, hlaut fjórðung atkvæða og virðist nú standa í vegi fyrir því að hægt sé að mynda starfhæfa stjórn. Versta martröð gömlu flokkanna hefur því ræst og meðal leiðtoga annarra Evrópusambandsríkja hefur skelfing gripið um sig. Ekki virðist vera hægt að treysta því að ítölsk stjórnvöld geti komið böndum á efnahagslífið, eins og stjórn hagfræðingsins Marios Monti hafði reynt að gera. Markaðir brugðust jafnframt ókvæða við og féllu ítölsk verðbréf um nokkrar prósentur. Pier Luigi Bersani, leiðtogi bandalags vinstri- og miðjuflokka, er að vísu með traustan meirihluta í neðri deild þingsins. Bersani hafði heitið því að halda áfram þeirri ströngu aðhaldsstefnu sem Mario Monti fylgdi síðastliðið ár og getur því styrkt stjórn sína enn frekar með því að fá Monti til liðs við sig. Allt önnur staða er hins vegar uppi í öldungadeildinni, þar sem flokkar þeirra Bersanis og Montis ná ekki þingmeirihluta. Til þess að frumvörp verði að lögum þarf samþykki beggja þingdeilda, þannig að í reynd yrði stjórn þeirra algerlega upp á náð og miskunn bandalags hægriflokkanna komin, sem er undir forystu Silvio Berlusconis. Berlusconi vill vinda ofan af þeim aðhaldsaðgerðum sem Monti hefur staðið fyrir þannig að vart er sjáanlegur neinn alvöru samstarfsflötur. Þótt hreyfing Grillos sé með 54 þingmenn í efri deildinni er vandséð að hún komi Bersani til hjálpar. Ítalir eru því farnir að sjá fram á nýjar kosningar innan fárra mánaða.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Fleiri fréttir Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Sjá meira