Biðst afsökunar á „blackface“-gervi Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 26. febrúar 2013 16:12 Hikind í gervinu (t.v.) og svo í vinnufötunum. Samsett mynd/AP
Ríkisþingmaður New York-fylkis, Dov Hikind, hefur beðist afsökunar á ljósmynd sem sýnir hann í „blackface"-gervi. Fréttastofa CNN greinir frá. Ljósmyndin er talin koma frá Facebook-síðu sonar Hikind, en tilefni myndatökunnar var Purim, árleg hátíð gyðinga sem haldin var um helgina. Yfir hátíðina klæða sumir sig í búning, og á ljósmyndinni er Hikind með sólgleraugu, krullaða svarta „afró"-hárkollu og málaður brúnn í framan. Hikind hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir athæfið, en „blackface" er það kallað þegar hvítur maður klæðir sig upp og málar eins og þeldökkur. „Blackface" var vinsælt í farandsýningum í Bandaríkjunum á nítjándu öld og þykir í dag mjög niðrandi. Til að byrja með vísaði Demókratinn Hikind gagnrýninni á bug, sagði hana „fáránlega pólitíska réttsýni" og sagðist einungis hafa verið að reyna að líkast „svörtum körfuboltaleikmanni". Nú er hins vegar komið annað hljóð í strokkinn og á blaðamannafundi sagði þingmaðurinn að sér þætti „leitt ef einhver hafi móðgast", og að á Purim-hátíðinni klæði fólk sig í búninga. Flokksfélagi Hikind, ríkisþingmaðurinn Karim Camara, segir gervið hafa verið tillitslaust og viðurstyggilegt, og að afsökunarbeiðnin ein og sér nægi ekki. „Það er góð byrjun en við þurfum að tala betur við hann," segir Camara, og bætir við að notkun „blackface" minni á þegar þeldökkir voru lítillækkaðir í þágu skemmtunar. Þá þykir þetta sérstaklega pínlegt í ljósi þess að fyrr í þessum mánuði gagnrýndi Hikind fatahönnuðinn John Galliano fyrir að klæðast fötum á tískuviku í New York, sem Hikind fannst niðrandi í garð trúfastra gyðinga.
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Sjá meira