Erlent

Hataðist glæpamaður Belga fær ekki að ljúka refsivist í stofufangelsi

Dómstóll í Belgíu hafnaði í dag beiðni barnaníðingsins Marc Dutroux um að hann yrði látinn laus úr fangelsi og fengi að ljúka refsivist sinni í stofufangelsi. Aðstandendur fórnarlamba hans fögnuðu niðurstöðunni.

Glæpirnir sem Dutroux framdi voru einstaklega ógeðfelldir. Hann rændi ásamt samverkamönnum sínum sex ungum stúlkum og nauðgaði þeim. Hann drap tvær þeirra og tvær til viðbótar létustu úr hungri eftir að hann hafði skilið þær eftir einar og yfirgefnar í dýflissu sem hann hafði útbúið.

Dutroux var dæmdur í lífstíðarfangelsi og hefur allar götur síðan verið einn hataðasti glæpamaður Belga.

Hann sótti nýverið um eins konar reynslulausn sem hefði veitt honum frelsi með ýmsis konar skilyrðum þó. Þessari beiðni var í dag hafnað á þeim forsendum að ennþá sé hætta á að Dutroux brjóti aftur af sér.

„Það gleður mig að hann skuli ekki fá staðsetningartæki, svo hættan er liðin hjá fyrst um sinn. Ég vona að hann sitji allan dóminn af sér," segir Jean Lambrecks, faðir einnar stúlkunnar.

Úrskurðurinn er þó aðeins skammgóður vermir því Dutraoux getur aftur sótt um reynslulausn í apríl á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×