Klámnotkun breskra grunnskólabarna raunverulegt vandamál 17. mars 2013 11:39
Aðgengi breskra grunnskólanemanda að klámi á netinu er farið að hafa alvarleg áhrif á hegðun þeirra og hugmyndir um sambönd samkvæmt fréttaskýringu breska dagblaðsins Daily Telegraph. Þar kemur fram að kennarar telji vandamálið orðið svo alvarlegt að þeir vilja sérstaka stefnumörkun í skólakerfinu til þess að takast á við vandamálið. Meðal birtingarmynda þessa vandamáls eru skilaboð sem ungar stúlkur senda á félaga sína. Skilaboðin eru kölluð á ensku „sexting" (sem er afbökun á orðinu texting) en þannig er þrýst á grunnskólastúlkur að senda myndir af sér fáklæddum til samnemanda í gegnum farsíma. Líffræðikennarinn Helen Porter segir í greininni að kynferðisleg hegðun grunnskólanema í skólanum sé að verða viðurkenndari en áður, því börn sjái mun meira klám á netinu en nokkurntímann áður. „Ég hef heyrt um þrettán ára stúlku sem lét mynda sig stunda kynlif," segir hún og bætir við að helmingur grunnskólanemanda í Bretlandi hafi átt kynlífsreynslu í gegnum vefmyndavél á netinu. Að auki hafa yfir þrjú þúsund nemendur, á árunum 2010 til 2011, verið vísað úr skóla fyrir óviðeigandi kynferðislega hegðun. Plymouth háskólinn hefur einnig greint frá því að 80 prósent ungmenna skoði klámefni á netinu reglulega. Börn er að meðaltali ellefu til tólf ára gömul þegar þau byrja að skoða klám. Þá er frekar regla en undantekning að unglingar á aldrinum 13-14 ára sendi kynferðislegar myndir af sér sjálfum til samnemanda. Samtökin Kiscape hafa lagt til, líkt og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, að klám á netinu verið bannað eða takmarkað. Talsmaður samtakanna, Peter Bradley, segir að ungmenni hafi aðgengi að hörðu klámi allan sólarhringinn; og þau eru að horfa á það. Greinina má lesa hér.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Sjá meira