Erlent

Loksins mynd af Hugo Chavez

Mynd/AP
Ríkisstjórnin í Venesúela hefur birt fyrstu myndirnar af Hugo Chavez síðan hann gekkst undir uppskurð á Kúbu fyrir rúmlega tveimur mánuðum.

Hinn 58 ára gamli leiðtogi sósíalista hafði ekki sést opinberlega síðan 11. desember. Þá gekkst hann undir sína fjórðu aðgerð á innan við 18 mánuðum vegna krabbameins.

Ríkisstjórnin segir myndirnar teknar í Havana á Kúbu fimmtudaginn 14. desember. Á myndinni sést Chavez með dætrum sínum tveimur þar sem hann les dagblað í rúmi sínu.

Mynd/AP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×