Erlent

Efnahagsmálin í brennidepli hjá Obama

Efnahagsmálin voru í brennidepli í stefnuræðu Baracks Obama Bandaríkjaforseta í nótt.

Obama sagði að 65 milljörðum dollara yrði varið til að auka hagvöxt í Bandaríkjunum á þessu ári. Markmiðið væri einkum að skapa vellaunuð millistéttarstörf.

Af upphæðinni sem Obama nefndi fer megnið eða 50 milljarðar dollara til ýmissa samgönguverkefna en 15 milljörðum dollara verður varið til að skapa fleiri störf í byggingargeiranum.

Þá lagði Obama til að lágmarkslaun í Bandaríkjunum yrðu hækkuð um 20% og yrðu því 9 dollara eða tæplega 1.200 krónur.

Hægt er að horfa á ræðu Obama í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×