Allir skulu eiga byssu 2. apríl 2013 22:03 Um öll Bandaríkin bregst fólk við fyrirhugaðri herðingu á skotvopnalöggjöfinni með ýmsum hætti. Nordicphotos/Getty
Bæjarráðið í bænum Nelson í Georgíu-fylki í Bandaríkjunum hefur samþykkt að höfuð allra fjölskyldna í bænum skuli eiga skotvopn. Engin viðurlög eru við því að brjóta reglurnar sem taka gildi innan tíu daga. Ekki verður heldur gengið úr skugga um að þeim verði fylgt eftir. Duane Cronic, sem á sæti í bæjarstjórn, viðurkennir að ástæða reglnanna sé að vekja athygli á réttindum fólks til að eiga skotvopn. „Ég líki þessu við aðvörunarskilti sem fólk setur upp í görðum sínum. Sumir hafa öryggiskerfi en aðrir láta nægja að setja upp skilti," segir Cronic sem segir lögin veita bænum ákveðið öryggi. Tillagan var samþykkt samhljóða í bæjarráðinu. Samkvæmt henni þarf höfuð fjölskyldunnar að eiga skotvopn og skotfæri til þess að verja bæjarbúa gagnvart mögulegri ógn. Lamar Kellett, íbúi í Nelson, var einn tveggja sem hreyfði við mótmælum á áheyrnarfundi sem fram fór í miðbæ Nelson í gær. Þótti honum meðal annars fáránlegt að að bærinn væri að leggja til reglur sem mætti brjóta. „Þýðir þetta að 80 km/klst hámarksakstur þýðir 110 km/klst, 125 km/klst eða hvað sem þú vilt? Munurinn er ekki svo mikill. Reglur eru reglur," sagði Kellett. Um 1300 manns búa í bænum Nelson sem er um 80 kílómetra norðan við Atlanta, höfuðborg Georgíu-fylkis.
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Fleiri fréttir Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Sjá meira