Daniel Day-Lewis hlaut söguleg Óskarsverðlaun 25. febrúar 2013 06:32
Daniel Day-Lewis skráði nafn sitt í sögubækurnar í nótt þegar hann hlaut Óskarsverðlaunin fyrir besta leik karlmanns í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Lincoln Bandaríkjaforseta í samnefndri mynd. Þar með varð Daniel Day-Lewis fyrsti karlleikarinn í sögunni sem unnið hefur þessi verðlaun þrisvar á ævi sinni. Hann vann áður árin 1989 fyrir My Left Foot og 2007 fyrir There Will Be Blood. Hann var einnig tilnefndur árin 1993 fyrir In The Name of The Father og 2002 fyrir Gangs of New York. Jack Nicholson hefur einnig hlotið Óskarsverðlaunin þrisvar á ævinni fyrir leik en í einu tilvika var um leik í aukahlutverki að ræða. Katharine Hepburn hefur hinsvegar hlotið oftast verðlaun fyrir leik í aðalhlutverki eða fjórum sinnum. Meryl Streep á síðan leikarametið í tilnefningum til Óskarsverðlauna eða 17 talsins. Af öðrum verðlaunum í gærkvöldi má nefna að Argo, mynd Bens Afflecks, var valin besta myndin og Ang Lee var valin besti leikstjórinn fyrir mynd sína Life of Pi. Quentin Tarantino fékk verðlaunin fyrir besta handritið í mynd sinni Django Unchained. Jennifer Lawrence fékk Óskarsverðlaunin í aðalleikkonuflokki fyrir myndina Silver Linings Playbook. Verðlaunin sem besta erlenda mynd ársins komu í hlut austurríska leikstjórans Michael Hanekes fyrir mynd sína Amour en hún hefur átt góðu gengi að fagna á öðrum kvikmyndahátíðum. Christoph Waltz fékk óskarsverðlaun fyrir besta leik karls í aukahlutverki, fyrir leik sinn í Django Unchained og Anne Hathaway fékk verðlaunin fyrir bestu frammistöðu leikkonu í aukahlutverki í myndinni Les Miserables.Óskarsrullur Daniel Day-Lewis; í My Left Foot árið 1989, í There Will Be Blood árið 2007 og í Lincoln árið 2012..
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Sjá meira