Ballerínur sagðar þvingaðar í vændi Guðsteinn Bjarnason skrifar 21. mars 2013 07:00 Nikolaí Tsiskaridse, aðaldansari ballettsins vill taka að sér stjórnina. nordicphotos/AFP
Anatolí Iksanov, stjórnandi rússneska Bolsjoí-ballettsins, sagðist á blaðamannafundi á þriðjudag ekkert vilja segja um harðar ásakanir frá Nikolaí Tsiskaridse, aðaldansara ballettsins. Tsiskarisde segir að Iksanov hafi eyðilagt ballettinn og komi fram við dansarana eins og þeir séu þrælar. Í sjónvarpsþætti á sunnudag sagðist Tsiskaridse vel geta tekið að sér að stjórna Bolsjoí. Með honum í sjónvarpsþættinum kom fram Anastasia Volotsjkova, fyrrverandi aðaldanskona ballettsins, sem tók undir ásakanirnar og bætti því við að Iksanov hefði þvingað helstu kvendansara ballettsins til að stunda vændi. Ætlast hefði verið til af þeim að þær færu út með stjórnarmeðlimum og velgjörðarmönnum ballettsins og svæfu hjá þeim, ef eftir því væri óskað. „Yfirmaður hringdi í þær og sagði að þær ættu að fara í partí og kvöldmat sem myndi enda í rúminu," sagði Volotsjkova í sjónvarpsþættinum. „Þegar stúlkurnar spurðu yfirmanninn hvað myndi gerast ef þær neituðu var svarið: Þið lendið þá í erfiðleikum í Bolsjoí." Þar sem þátturinn var sýndur á ríkisrekinni sjónvarpsstöð þykir ólíklegt annað en að rússnesk stjórnvöld séu farin að hugsa sér að gera breytingar á yfirstjórn ballettsins. Iksanov hefur stjórnað Bolsjoí-ballettinum í þrettán ár og hefur notið velvildar Vladimírs Pútín forseta. Tsiskaridse er á hinn bóginn einnig sagður njóta stuðnings í æðstu röðum rússneskra ráðamanna. Harðvítug valdabarátta hefur geisað árum saman í ballettinum en upp úr sauð í janúar þegar ráðist var með sýru á Sergei Filin, listrænan stjórnanda ballettsins og náinn samstarfsmann Iksanovs. Málið tók síðan nýja stefnu eftir að Tsiskaridse kom félaga sínum, dansaranum Pavel Dimitritsjenkó sem viðurkennt hefur að hafa fengið vin sinn til að þrýsta á Filin, til varnar og tók undir gagnrýni hans á Filin. Iksanov kennir hins vegar Tsiskaridse alfarið um að hafa spillt andrúmsloftinu innan ballettsins með ásökunum sínum. Þá hefur Diljara Timergasína, aðstoðarkona Filins, tekið undir þessar ásakanir á hendur Tsiskaridse, sem hún segir aðaluppsprettu spennunnar innan flokksins.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Fleiri fréttir „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Sjá meira