Þjálfari Slóvena fyrrum liðsfélagi Ásgeirs Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Ljubljana skrifar 21. mars 2013 11:30 Srecko Katanec.
Srecko Katanec er nýtekinn við landsliðsþjálfarastarfi Slóvena á ný en hann var við stjórnvölinn þegar að landsliðið vann sína fræknustu sigra í stuttri sögu þjóðarinnar. Katanec var við stjórnvölinn þegar að Slóvenía tryggði sér sæti í úrslitakeppni EM 2000 og HM 2002. Eftir upplausn Júgóslavíu árið 1991 náði slóvenska landsliðið að byggja upp sterkt lið á ótrúlega skömmum tíma en talað er um landslið þessa ára sem gullnu kynslóð slóvenskrar knattspyrnu. Fyrir henni fóru þjálfarinn Katanec og miðjumaðurinn Zlatko Zahovic. Katanec hætti eftir HM 2002 en Slóvenar töpuðu öllum leikjum sínum þar. Hávaðarifrildi við Zahovic setti einnig stórt strik í reikninginn. Katanec var sjálfur öflugur leikmaður og fastamaður í gamla júgóslavneska landsliðinu. Hann hóf ferilinn á Balkansskaganum en árið 1988 samdi hann við þýska liðið Stuttgart og lék við hlið Ásgeirs Sigurvinssonar, til að mynda í tveimur úrslitaleikjum UEFA-keppninnar gegn Napoli. Helsta stjarna þess liðs var vitanlega Diego Maradona. Hann stoppaði þó bara í eitt ár í Þýskalandi en var næstu fimm árin með Sampdoria á Ítalíu. Katanec tók þátt í mögnuðum árangri liðsins en liðið varð á þeim árum Ítalíumeistari, ítalskur bikarmeistari og Evrópumeistari bikarhafa árið 1990 eftir sigur á Arnóri Guðjohnsen og félögum hans í Anderlecht í úrslitaleiknum. Katanec lék því með mörgum frábærum leikmönnum á sínum tíma og komst einnig í kynni við góða íslenska knattspyrnumenn. Eftir HM 2002 tók Katanec við Olympiakos í Grikklandi en var bara í eitt tímabil. Greinilegt er að landsliðsþjálfarastarfið á betur við hann því síðan þá hefur hann þjálfað bæði makedónska landsliðið sem og lið Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Ferillinn hefur þó sjálfsagt ekki þá stefnu sem hann vonaðist eftir á sínum tíma, er hann kom slóvenska landsliðið á heimskortið fyrir rúmum áratug síðan. En nú er hann kominn aftur heim og hyggst á að bæta landsmönnum heldur slakt gengi eftir að liðið náði þeim frábæra árangri að komast á HM 2010 í Suður-Afríku. Hans fyrsta alvöru verkefni verður gegn Íslandi á föstudaginn en þar fær hann tækifæri til að koma sínu liði á beinu brautina. Liðið er einnig vel meðvitað um að tap í þeim leik gerir möguleika þess á að komast áfram upp úr riðlinum og alla leið til Brasilíu afar litla.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Dagskráin í dag: Stjörnur eiga leik á HM, NFL og enski Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Fleiri fréttir Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Skagastrákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Sjá meira