Öskraði og var bjargað af bjargi 4. apríl 2013 20:57 Nicholas Cendoya (t.v.) og Kyndall Jack.
Hávær öskur hinnar átján ára Kyndall Jack leiddi til björgunar hennar úr Trabuco gljúfrinu í Kaliforníu í morgun. Hennar hafði verið leitað síðan á páskasunnudag. Los Angeles Times greina frá þessu. Björgunarmenn komu henni til bjargar í morgun eftir að göngumaður tjáði þeim að hann hefði heyrt það sem hann taldi kvenmannsöskur. Lögregluyfirvöld segja að hún hafi fundist um 800 metra frá þeim stað sem Jack og vinur hennar, Nicholas Cendoya, lögðu bílum sínum á sunnudag. „Hún svarar okkur, virðist hafa orðið fyrir miklu vökvatapi og er veikburða," sagði Jason Park úr lögreglunni í Orange sýslu. Á þeirri stundu var verið að flytja Jack á spítala. Park sagði björgunaraðgerðir hafa verið erfiðar þar sem mjög bratt hefði verið við bjargið. Einn björgunarmannanna varð fyrir höfuðmeiðslum sökum falls og var einnig fluttur á spítala. Foreldrar Jack grétu, föðmuðu og þökkuðu lögreglumönnum fyrir aðstoðina. „Þetta er ástæðan fyrir því að við erum í þessu starfi," sagði yfirlögregluþjónninn John Muir. Leitað hafði verið að Jack og Cendoya síðan á sunnudag. Þá hringdu vinirnir átján og nítján ára í lögreglu úr farsíma sínum og sögðust hafa villst. Cendoya fannst loksins í gærkvöldi í svipaðri fjarlægð frá bílnum og Jack fannst í dag. Hann þjáðist af vökvaskorti og ekki alveg með á nótunum. Björgunarmenn þurftu að klöngrast í gegnum þykkt gróðurlendi til þess að komast að Cendoya sem var í stuttbuxum, bol og skólaus. Handleggir og fætur hans voru þakktir örum og var farið með hann rakleiðis á spítala. Ástand hans var alvarlegt við komu en hann hefur brugðist vel við læknismeðferð. Talið er að hann fái að yfirgefa spítalann innan nokkurra daga. Dr. Michael Ritter, læknir á spítalanum, tjáði fjölmiðlum að Cendoya hefði sagt sér að vinirnir hefðu orðið aðskila þegar myrkur skall á á páskasunnudag. Síðan hefði hann ekki séð vinkonu sína. „Nick (innsk:Nicholas Cendoya) sagði að það sem hefði haldið honum gangandi var bænin. Hann sagðist hafa beðið til guðs hvernig einasta daga og nótt um styrk til þess að bjargast."
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Sjá meira