Sex börn létust eftir íkveikju föðurins 4. apríl 2013 23:51 Skjáskot úr breskum sjónvarpsþætti þar sem Philpott sat fyrir svörum.
Enskur faðir hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að standa fyrir því að kveikt yrði í heimili barnsmóður hans í Derby á Englandi. Sex börn hans létu lífið í brunanum. Dómarinn í málinu sagði Mick Philpott sérstaklega hættulegan mann með enga siðferðiskennd. Philpott, sem er 56 ára gamall, mun sitja inni í að minnsta kosti fimmtán ár eftir að hafa verið fundinn sekur um manndráp á börnunum sex. Guardian greinir frá. Philpott var einn þriggja sem kveikti í húsinu. Eiginkona hans og vinur fengu 17 ára dóm fyrir sína aðkomu að málinu. Þau munu ekki eiga kost á lausn fyrr en að hafa setið inni í að minnsta kosti hálfan dómstímann. Dómarinn sagði að áætlunin um að kveikja í húsinu og reyna að bjarga börnunum hafi verið heimskuleg og kvikyndisleg tilraun. Slík hugsun ætti að vera fjarri öllu eðlilegu fólki. Philpott er sautján barna faðir. Barnsmóðir barnanna sem létust hafði yfirgefið hann en Philpott ætlaði að fá hana aftur til sín. Því hafi hann ákveðið að setja á svið björgunaraðgerðina til þess að sína fram á hetjudáð. Í dómsúrskurðinum minntist dómarinn á tilraun hans til þess að drepa kærustu sína fyrir 35 árum. Þá tilraun hafi hann ítrekað notað til þess að hræða konur yrðu þær ekki við vilja hans. Almenningur í dómshúsinu öskraði „drepstu Mick, drepstu," þegar hann var leiddur þaðan. Á Philpott að hafa brugðist við með óviðeigandi handabendingum.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Sjá meira