Útför Nelsons Mandela stendur yfir 15. desember 2013 09:27 AFP
Útför Nelsons Mandela, fyrrverandi forseta Suður-Afríku, hófst klukkan 6 að íslenskum tíma í morgun. „Þessi dagur markar endalok ótrúlegs ferðalags sem hófst fyrir 95 árum,“ sagði forseti Suður Afríku, Jacob Zuma, í athöfninni. „Þetta eru leiðarlok 95 ótrúlegra ára frelsishetju... sem bjó til von fyrir þá sem berjast fyrir jafnrétti í heiminum,“ bætti hann við. Um 4,500 manns eru viðstaddir útför Mandela í Qunu, meðal annars ekkja hans, Graca Machel, og fyrrverandi eiginkona, Winnie Mandela. „Þú stendur fyrir dyggðir á borð við fyrirgefningu og sættir,“ sagði Ahmed Kathrada, náinn vinur sem sat í fangelsi með Mandela fyrir sömu sakir. „Ég hef misst bróður. Það er tómarúm í lífi mínu og ég veit ekki að hverjum ég get snúið mér,“ sagði hann. Spjallþáttastjórnandinn Oprah Winfrey, Karl Bretaprins og athafnamaðurinn Richard Branson eru einnig meðal viðstaddra. Einnig má nefna fyrrverandi erkibiskupinn Desmond Tutu.Winnie Mandela, fyrrverandi eiginkona Nelsons Mandela, og Jacob Zuma, forseti Suður AfríkuAFP„Nelson Mandela var leiðtogi, hetja, fyrirmynd og okkar faðir eins og ykkar,“ sagði Jakaya Kikwete, forseti Tansaníu. Nelson Mandela lést þann fimmta desember síðastliðinn eftir að hafa fengið lungnasýkingu. 95 kerti loga nú í útför hans, eitt fyrir hvert ár af ævi hans. Qunu er bærinn þar sem fyrrum forsetinn og frelsishetjan ólst upp. Meðal þess sem staðið hefur upp úr það sem af er útförinni er ræða Joyce Banda, forseta Malaví, um hvernig hún hefur reynt að læra af Mandela og haft hann sem fyrirmynd á sínum pólitíska ferli. Kenneth Kaunda, fyrrverandi forseti Zambíu, hélt þrumandi ræðu þar sem hann talaði um hvíta leiðtoga innan aðskilnaðarstefnuna sem Boers - hugtak sem er ekki lengur notað um hvíta frá Suður Afríku. Afabörn Mandela, Ndaba og Nandi Mandela, töluðu bæði í útförinni. Spjallþáttastjórnandinn Oprah og athafnamaðurinn Richard Branson eru meðal viðstaddra í útförinni.AFP
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Sjá meira