Íslenskum læknanemum í Ungverjalandi hefur fjölgað gríðarlega Hugrún Halldórsdóttir skrifar 28. ágúst 2012 19:30
Íslenskum læknanemum í Ungverjalandi hefur fjölgað um hundrað og áttatíu prósent á sjö árum. Námið er sambærilegt og jafngilt því sem kennt er hér heima, segir ung kona sem hefur lagt stund á fræðin í báðum löndum. Eftir að hafa þreytt inntökupróf í læknisfræði hér á landi í tvígang án þess að komast inn ákvað Helga María Alfreðsdóttir að hefja nám við alþjóðlega læknaháskólanum í Debrecen árið 2006. „Það er auðveldara að komast inn úti en á móti kemur að fyrsta árið er rosalega strembið úti það er sían í rauninni," segir Helga María. Námið ytra kostar tæpar tvær milljónir á ári en samkvæmt upplýsingum frá LÍN fjölgar íslenskum nemendum þar ört. Helga stundaði á sínum tíma nám ásamt um 30 öðrum Íslendingum hið minnsta, en það ár fóru flestir til Danmerkur. Dæmið hefur nú hins vegar algjörlega snúist við. „Flestir eru að fara út vegna þess hvað það er erfitt að komast inn hérna heima en auðvitað eru einhverjir sem vilja fara út og læra úti," segir Helga María. Helga María flutti aftur til Íslands eftir að hafa klárað fyrsta árið í Ungverjalandi þar sem hún átti von á barni en hún ákvað eftir barnsburð að taka inntökuprófið hér á landi á ný og komst inn. „Þetta er sama námið í sitthvoru landinu. Sambærilegt og jafngilt, ég vil leiðrétta það fyrir þá sem halda eitthvað annað," segir María. „Fyrst þegar ég var að ströggla við að komast inn heima og komst ekki inn þá var ég náttúrulega mjög fúl eins og margir og skellti mér til Ungverjalands af illri nauðsyn. En þegar ég var komin þarna út þá var ég eiginlega bara rosalega fegin. Ég hefði misst af þessari reynslu ef ég hefði komist inn hérna heima strax."
Mest lesið Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Erlent Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Innlent Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Innlent „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Innlent Einum úr áhöfninni bjargað Erlent Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Veður „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Innlent Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis Innlent Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Erlent Fleiri fréttir Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Sjá meira
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent