Erlent

Um 700 tonn af gullgrýti sukku í sæ

Gullgrýti
Gullgrýti
Flutningaskip með hátt í 700 tonn af gull málmgrýti og níu skipverja um borð hvarf undan Kyrrhafsströnd Rússlands fyrr í dag.

Skipið sendi út neyðarkall í gærkvöld er það sigldi framhjá Feklistov-eyjum í Okhotsk-hafi. Afar slæmt veður var á svæðinu öldugangur mikill.

Um 700 tonn af gullgrýti var um borð í skipinu. Farmurinn var í eigu rússneska gullframleiðandans Polymetal. Fyrirtækið hefur ekkert gefið upp um virði farmsins.

Flytja átti gullið milli náma í Rússlandi. Málmgrýtið átti að nota til vinna gull og aðra verðmæta málma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×