Myrti fimm mánaða gamlan son sinn með Kóraninum 31. október 2012 14:15 Konan var handtekin og ákærð fyrir morð MYND/AFP
Tuttugu og átta ára gömul kona í Svíþjóð hefur játað að hafa kæft fimm mánaða gamlan son sinn með eintaki Kóraninum. Hún bar fyrir dóminum að morðið hafi verið framið í stundarbrjálæði. „Ég vildi ekki drepa hann, ég vildi bjarga honum," hefur Aftonbladet eftir konunni. Málflutningur í máli hennar hófst í dag í vestur Svíþjóð. Atvikið átti sér stað í júlí á þessu ári. Eiginmaður konunnar kom þá heim úr vinnu og fann lík barnsins. Augljóst er að konan barði son sinn ítrekað og kæfði að lokum. Konan var handtekin og ákærð fyrir morð. Hún gekkst við ásökununum en sagði að martraðakenndar sýnir hefðu knúið hana til þess að myrða barnið. „Ég sá horn á höfði barnsins," sagði konan. „Og vínviður óx út úr líkama hans. Síðan sá ég höfuð aldraðs manns á barninu. Ég vildi bjarga honum, ekki drepa." Frá því að konan var handtekin í júlí hefur hún verið vistuð á réttargeðdeild. Að mati geðlækna var konan ekki ábyrg gjörða sinna. Eiginmaður konunnar gaf einnig skýrslu í dag. Hann sagðist harma atvikið. Engu að síður lýsti hann eiginkonu sinni sem ljúfri manneskju. „Hún var góð móðir og góð eiginkoan," sagði eiginmaðurinn. „Ég vona að hún fái nú þá hjálp sem hún þarfnast."
Mest lesið Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Erlent Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Fleiri fréttir Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“ Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Birtu nektarmyndir af ungum konum fyrir mistök Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta „Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Sjá meira