Eldflaugaskotið klúðraðist 13. apríl 2012 08:33 Mynd/AP
Yfirvöld í Norður Kóreu staðfesta að eldflaugaskot þeirra í gærkvöldi hafi farið út um þúfur. Miklar deilur hafa verið um eldflaugaskotið síðustu daga en flauginni var skotið á loft í gærkvöldi. Nágrannarnir í suðri ásamt fleiri ríkjum sögðu að um tilraun til að þróa langdræga flaug sem borið gæti kjarnavopn væri að ræða en Norður Kóreumenn sögðu ávallt að þeir ætluðu sér að skjóta gerfihnetti á sporbaug um jörðu. Hnötturinn átti síðan að útvarpa lofsöngvum um hinn ástkæra leiðtoga Kim il Sung, afa núverandi leiðtoga Kim Jong un. Þegar flauginni var loks skotið á loft hélst hún aðeins á réttri braut í stuttan tíma áður en hún brotnaði í sundur og féll í sjóinn við Kóreuskaga. Yfirvöld í höfuðborginni Pyongyang hafa viðurkennt að um bilun hafi verið að ræða. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur verið kallað saman til fundar vegna málsins en allar tilraunir með langdrægar kjarnaflaugar eru bannaðar samkvæmt ályktun Sameinuðu þjóðanna. Suður Kóreu menn hafa þegar sett af stað leitarflokka sem leita nú að brakinu úr flauginni til þess að komast að því hvað fyrir nágrönnum þeirra vakti.
Mest lesið Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Pútín sló öll met Erlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Fleiri fréttir Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Sjá meira