Fótbolti

Toshack vildi ekki búa í Makedóníu og hætti

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
John Toshack
John Toshack Nordicphotos/Getty
John Toshack er hættur sem landsliðsþjálfari Makedóníu í knattspyrnu. Ástæðan ku vera sú að Walesverjinn neitar að búa í Makedóníu.

„Landsliðsþjálfari Makedóníu, John Toshack, er ekki tilbúinn að fullnægja kröfum formanns knattspyrnusambands Makedóníu og samþykkt að rifta samningi sínum," segir í fréttatilkynningu frá knattspyrnusambandi Makedóníu.

Toshack tók við landsliði Makedóníumanna fyrir rúmu ári síðan og stýrði liðinu í átta leikjum. Eini sigurinn kom gegn Andorra í september síðastliðnum.

Reiknað er með því að eftirmaður Toshack verði kynntur til sögunnar síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×