Erlent

Vopnahléið að leysast upp í ófrið

Eldur kviknaði í nokkrum byggingum í Homs í gær eftir að stjórnarherinn skaut sprengjum á hverfi undir valdi uppreisnarmanna. FréttablaðiÐ/AP
Eldur kviknaði í nokkrum byggingum í Homs í gær eftir að stjórnarherinn skaut sprengjum á hverfi undir valdi uppreisnarmanna. FréttablaðiÐ/AP
Vopnahlé stríðandi fylkinga í Sýrlandi leystist upp í átök í gær einungis fjórum dögum eftir að því var lýst yfir. Stjórnarherinn skaut sprengjum á íbúðahverfi í borginni Homs þar sem stjórnarandstaðan ræður ríkjum.

Hófst sprengjuregnið nokkrum klukkustundum áður en eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna (SÞ) mættu til Homs en hlutverk þeirra er að fylgjast með því að vopnahlénu sé fylgt eftir.

Þótt árásirnar í gær hafi verið umfangsminni en árásir síðustu vikna vekja þær upp efasemdir um að Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, hafi raunverulegan áhuga á að fylgja eftir friðaráætlun Kofi Annan, erindreka SÞ í Sýrlandi.

Assad samþykkti friðaráætlunina eftir að Rússar, helstu bandamenn stjórnar hans, hvöttu til þess en hann hefur reynst tregur til að fylgja henni eftir. Uppreisnarmenn hafa einnig neitað að leggja alfarið niður vopn og hafa gert nokkrar árásir á stjórnarhermenn frá því að friðaráætlunin var samþykkt.

Áætluninni er ætlað að binda endi á borgarastríðið en átök hafa staðið yfir í þrettán mánuði.- mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×