Erlent

Á leið í Alþjóðlegu geimstöðina

Frá Kasakstan í dag.
Frá Kasakstan í dag. MYND/AP
Rússneskt geimfar braut sér leið í gegnum lofthjúp jarðar fyrr í dag. Um borð voru þrír geimfarar, einn bandaríkjamaður á vegum NASA og tveir Rússar.

Áfangastaðurinn er Alþjóðlega geimstöðin og munu skipverjarnir tengjast henni seinna í þessari viku.

Sendiförin er ein sú þýðingarmesta í sögu geimstöðvarinnar. Markmiðið er að vinna að ýmsum vísindalegum rannsóknum.

Hingað til hafa geimfarar unnið að viðhaldi og smíði stöðvarinnar en fyrst núna verður sannarlega einblínt á vísindaleg markmið verkefnisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×