Segir ummæli Steingríms um málþóf kjánaleg Erla Hlynsdóttir skrifar 28. maí 2012 12:30 Segist ekki eiga roð í Steingrím varðandi málþóf.
Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks segir það kjánalegt hjá formanni Vinstri Grænna að halda því fram að málþóf stjórnarandstöðunnar komi í veg fyrir framgang mikilvægra mála. Hún segir formanninn hafa talað miklu lengur á þingpöllum en hún. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að hér áður hafi hann upplifað svonefnt málþóf þannig að mikil átök hafi verið um einstök ágreiningsmál. „Og tíminn fór þá oft í langar umræður um þau, en núna fer stærsti hluti tímans í endalausar fimm mínútna umræður og fimmtán mínútna andsvör, eða meðsvör, þar sem samherjar eru í andvörum hverjir við aðra," sagði Steingrímur. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, var meðal þeirra sem sérstaklega voru nefndir í þessu sambandi. „Mér finnst þetta nú hálf kjánalegur og hreint út sagt fáránlegur málflutningur hjá Steingrími J. Sigfússyni og sem stenst einfaldlega enga skoðun þegar tölurnar eru skoðaðar í gegn um tíðina," segir Ragnheiður Elín. „Mér finnst hann vera að gera sig sekan um að fara af stað með einhvern spuna núna þegar við erum að fara í lokahnykkinn á þinginu þar sem hann ætlar að reyna að halda því fram að stjórnarandstaðan sé að koma í veg fyrir að ríkisstjórnin nái málum sínum fram á þinginu og þar er hann að reyna að breiða yfir hversu seint ríkisstjórnin kemur fram með málin, og hversu illa undirbúin hún er." Spurð hvort hún standi fyrir málþófi svarar Ragnheiður: „Ég held að ef við skoðum tölurnar þá verð ég því miður að viðurkenna að ég hef ekki roð í þetta fólk sem er nú farið að væna okkur um þetta. Ég kíkti til gamans á gamlar tölur, af því steingrímur var að tala um athugasemdir okkar, að við værum komin af stað með nýja tegund af málþófi, þá er það nú þannig að athugasemdir hans nokkur ár í röð eru fleiri og taka meiri tíma en allar þingræðurnar mínar. Þannig að ég verð að játa mig sigraða ef Steingrímur J Sigfússon ætlar að fara að bera ræðutíma okkar saman."
Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Erlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Erlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Ólína fyllir í skarð Margrétar á Bifröst „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Starfsfólk bráðamóttöku óttist um heilsu sína og öryggi Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Vill að virðisaukaskattur á barnavörur verði látinn fjúka Starfsfólk á bráðamóttöku segist óttast um öryggi sitt Afplánaði of lengi en fær ekki krónu Hæstiréttur fjallar um hryðjuverkamálið svokallaða í dag Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Lægðirnar nái ekki til landsins Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Stoltur yfir arfleifð Bryndísar Klöru en söknuðurinn sár Spila styrktarleik til minningar um Patrek: „Hans er sárt saknað“ Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Innflutningi stýrt frá Litla-Hrauni Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út „Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Ræða við vitni og hraðakstur til skoðunar Bein útsending: Færri börn undir þrettán ára á TikTok Sjá meira