Erlent

Fimmti hver Dani gengst við ölvunarakstri

Fimmtungur Dana segist hafa ekið bíl undir áhrifum áfengis.
Fimmtungur Dana segist hafa ekið bíl undir áhrifum áfengis.
Fimmtungur Dana gengst við því að hafa ekið bíl undir áhrifum áfengis. Þetta kemur fram í könnun sem var gerð fyrir blaðið MetroXpress.

Um er að ræða alvarlega meinsemd í umferðarmenningu Dana. Í fyrra voru til dæmis 50 dauðsföll rakin til ölvunaraksturs.

Fræðimenn sem blaðið talar við leggja áherslu á að viðhorfsbreytingar sé þörf og almenningur verði að taka afstöðu gegn ölvunarakstri. Hluti af því sé að grípa í taumana þegar vinir og kunningjar hyggjast aka undir áhrifum. - þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×