Erlent

Uppreisnarliðið tók tugi af lífi

Uppreisnarmenn í Sirte
Hrósuðu sigri fyrir ári.
Uppreisnarmenn í Sirte Hrósuðu sigri fyrir ári. nordicphotos/AFP
Uppreisnarmenn í Líbíu tóku tugi stuðningsmanna Múammars Gaddafí, og líklega hann sjálfan, af lífi án dóms og laga þegar þeir náðu heimabæ hans, Sirte, á vald sitt fyrir einu ári.

Þetta fullyrða mannréttindasamtökin Human Rights Watch, sem hafa sent frá sér skýrslu um mannréttindabrot uppreisnarmanna í Sirte.

Gaddafí sjálfur féll þegar hann reyndi að flýja borgina þann 20. október á lokadögum borgarastyrjaldarinnar í Líbíu. - gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×