Erlent

Bankarán framið þriðja hvern dag að meðaltali í Danmörku

Bankarán var framið að meðaltali þriðja hvern dag í Danmörku í fyrra.

Alls voru framin 116 bankarán í landinu í fyrra og þótt það séu nokkuð færri rán en árið áður þegar þau vporu 135 talsins telur fjármálaráð Danmerkur að fjöldi þeirra sé alltof mikill enda séu ránin mikil áþján fyrir starfsfólk þeirra banka sem verða fyrir barðinu á ræningum.

Hið jákvæða í málinu sé að yfirleitt hafa bankaræningjarnir ekki mikið upp úr krafsinu. Heildarránsfengurinn er þó ekki gefinn upp af öryggisástæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×