Halldór Gylfa faðmaði sviðsmanninn eftir óhappið Boði Logason skrifar 13. febrúar 2012 14:09 Mildi þykir að Halldór hafi ekki slasast meira eftir fallið, sem var um fjórir metrar. mynd/365 „
Ég er svona að koma til. Mér er svolítið illt í bakinu, er aumur og marinn, og get ekki verið á mikilli hreyfingu," segir Halldór Gylfason, leikari í Borgarleikhúsinu. Um helgina féll hann fjóra metra niður hlera sem opnaðist fyrir slysni þegar hann var að leika í sýningunni Galdrakarlinn í Oz. Halldór slapp ótrúlega vel og að sögn lækna, sem hafa myndað hann í bak og fyrir, er hann óbrotinn. Hann féll niður hlerann í miðri sýningu en fallið var eins og áður segir fjórir metrar. „Ég datt fyrst á lyftu sem var um einn metra fyrir neðan sviðið og svo eftir það datt ég þrjá metra." Hann var fluttur með sjúkrabíl upp á spítala. Hann segist vera heppinn að hafa sloppið svona vel. „Ef maður hefði lent einhvern veginn öðruvísi þá hefði þetta getað farið verr. Ég var heppinn að reka ekki hausinn utan í neitt," segir hann og kveðst ekki hafa lent áður í svipuðu slysi. „Leikarar lenda ekki í svona á hverjum degi." Mannleg mistök urðu til þess að hlerinn opnaðist fyrir slysni. „Þetta var bara óheppni og mistök. Það getur alltaf gerst, þetta voru bara mannleg mistök," segir hann en hann ber engan kala til þess sem átti að sjá um að hlerinn væri lokaður. „Nei, þvert á móti. Það er bara kærleikur til stráksins sem sá um þetta. Ég hitti hann strax eftir þetta og við föðmuðumst." Bergur Þór Ingólfsson, leikari og leikstjóri sýningarinnar, tók að sér hlutverk Halldórs sem huglausa ljónið það sem eftir var af sýningunni.
Tengdar fréttir Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu "Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikarinn og leikstjórinn Bergur Þór Ingólfsson sem leikstýrir leiksýningunni Galdrakarlinn í Oz sem er sýnd í Borgarleikhúsinu. 12. febrúar 2012 10:45 Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira
Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu "Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikarinn og leikstjórinn Bergur Þór Ingólfsson sem leikstýrir leiksýningunni Galdrakarlinn í Oz sem er sýnd í Borgarleikhúsinu. 12. febrúar 2012 10:45