Erlent

Handtekinn á Schiphol

Schiphol flugvöllurinn í Amsterdam.
Schiphol flugvöllurinn í Amsterdam.
Lögreglan í Hollandi hefur handtekið mann sem læsti sig inni á klósetti á Schiphol flugvelli í Amsterdam og sagðist vera með sprengju innan klæða.

Mikill viðbúnaður var vegna fullyrðingar mannsins og var stærstur hluti flugvallarins rýmdur í öryggisskyni. Sprengjusveit og sérsveit lögreglunnar var á staðnum og yfirbuguðu lögreglumenn manninn án mikillar fyrirhafnar.

Engin sprengja virðist hafa verið á staðnum. Í desember 2009 var nígerískur námsmaður stöðvaður á Schiphol en hann var á leið til Detroit í Bandaríkjunum með sprengiefni innan klæða. Sá hefur viðurkennt að hafa ætlað að sprengja upp flugvél og ákveður dómari í Amsterdam á fimmtudaginn kemur hve langan dóm hann fær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×