Erlent

Whitney aftur komin á vinsældarlista

Whitney Houston árið 1994.
Whitney Houston árið 1994. mynd/AP
Hljómplötur söngkonunnar Whitney Houston eru enn á ný komnar á vinsældarlista. Safnplötur hennar eru í öðru sæti á vinsældarlista iTunes í Bandaríkjunum og Bretlandi.

Þrír dagar eru síðan söngkonan fannst látin á hótelherbergi sínu í Los Angeles og síðan þá hefur eftirspurn í hljómplötur hennar rokið upp úr öllu valdi.

Aðdáendur hafa þó gagnrýnt iTunes fyrir að hækka verðið á safnplötu Houston í Bretlandi. Verðið hækkaði úr 4.99 pundum í 7.99. Stjórnendur iTunes í Bretlandi hafa ekki tjáð sig um hækkunina.

Það eru þó ekki aðeins safnplötur Houstons sem gengið hafa í endunýjun lífdaga því frumraun hennar, einfaldlega nefnd Whitney Houston, hefur einnig náð inn á vinsældarlista. Að sama skapi hefur hljóðrás kvikmyndarinnar The Bodyguard einnig verið vinsæl síðustu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×