Hart deilt um afskipti þingmanna í mótmælunum 28. febrúar 2012 14:27 Álfheiður Ingadóttir brást hart við ræðu Jóns og sakaði hann um lygar.
Jón Gunnarsson þingmaður sjálfstæðisflokksins tók til máls á Alþingi í dag undir liðnum störf þingsins og minntist á umræðu síðustu daga í kjölfar ummæla Geirs Jóns Þórissonar yfirlögregluþjóns sem í viðtali í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni. Þar sagði Geir Jón að lögregla hefði grun um að nokkrir þingmenn hefðu stýrt fólki fyrir utan Alþingishúsið þegar mótmælin á Austurvelli stóðu sem hæst. Jón sagðist undrast ummæli sem þingmenn á borð við Steingrím J. Sigfússon og Álfheiður Ingadóttir hafi látið falla síðustu daga. Hann sagði þau saka Geir Jón um að bera á sig dylgjur. Að mati Jóns gerði Geir Jón ekki annað en að svara spurningum þáttastjórnanda „og nefndi þar engin nöfn." Jón sagði ennfremur að vissulega hefðu spurningar vaknað í mótmælunum. Hann sagðist meðal annars spyrja sig hvernig á því hafi staðið að hópur mótmælenda hefði farið og teppt innkeyrsluna í bílageymslu Alþingis um leið og lögregla hugðist færa handtekna mótmælendur þangað. „Maður spyr sig hvort ummæli háttvirts þingmanns hér á göngunum að lögreglan gangi hart fram í því að verja Alþingi og að í lagi væri að mótmælendur færu um Alþingishúsið, brytu hér allt og brömluðu," sagði Jón og bætti við að sami þingmaður hafi sagt: „Þetta eru hvort eð er allt dauðir hlutir."„Hættu þessum lygum Jón Gunnarsson!" Álfheiður Ingadóttir þingkona VG greip þrívegis fram í fyrir Jóni á meðan á ræðu hans stóð og kallaði: „Hættu þessum lygum Jón Gunnarsson!" Jón hélt áfram og sagði: „Eru þetta ummæli sem eru til þess fallin að draga úr mótmælum eða hvetja til þeirra virðulegi forseti." Jón sagðist ennfremur spyrja sig hvort „ummæli sem þingmenn létu falla við lögreglumenn vegna veru þeirra hér í Alþingishúsinu hafi verið eðlileg. Þau voru þess eðlis allavega að mörgum lögreglumanninum bauð það helst að hverfa af vettvangi eftir slík ummæli." Jón spurði einnig hvers vegna framkomin tillaga framsóknarmanna um rannsókn Alþingis á málinu fái ekki framgang í þinginu. „Sannleikanum er kannski hver sárreiðastur," sagði Jón að lokum.
Mest lesið „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Notuðu gröfu til að brjótast inn í hraðbanka Innlent Vöknuðu með rottu upp í rúmi Innlent Húsleit á heimili þekkts brotamanns Innlent Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Innlent „Þetta er innrás“ Innlent Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Innlent Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Innlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Fleiri fréttir Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Telur handtökuna byggja á slúðri Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Hamarsvirkjun í bið frekar en vernd Gæsluvarðhald leiðbeinandans framlengt Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Höfuðpaur fær þremur mánuðum lengri dóm en burðardýr Veðrið sem hlaupararnir á laugardag geta búist við „Þetta er innrás“ Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Óbreyttir stýrisvextir, samræmd námspróf og breytt snið á Menningarnótt Kjósa um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar í september Enginn handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Mínútuþögn á Menningarnótt Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf „Það er engin sleggja“ Slökktu eld í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Ísland frumstætt samanborið við Noreg Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór Sjá meira