Sara Björk: Ég vil bara vinna þær Óskar Ófeigur Jónsson í Osló skrifar 19. september 2012 08:00
Sara Björk Gunnarsdóttir, miðjumaður íslenska landsliðsins, ætlar sér meira en jafntefli á móti Noregi á Ullevaal-leikvanginum í Osló í dag en þetta er lokaleikur liðanna í undankeppni EM 2013. Íslenska liðinu nægir hinsvegar jafntefli til þess að tryggja sér farseðillinn á Evrópumótið í Svíþjóð næsta sumar. „Það er rosalega mikil spenna í öllum. Við vitum allar hversu mikilvægur þessi leikur er og við munum koma rétt stemmdar í leikinn það er alveg klárt," segir Sara Björk. „Það skipti öllum máli fyrir okkur að vinna leikinn á móti Norður-Írlandi og tryggja okkur umspil. Nú ætlum við bara einbeita sér að þessum leik og það eru allar rosalega tilbúnar í þennan leik. Við ætlum allar að leggja okkur hundrað prósent fram og fara á EM," segir Sara en íslensku stelpurnar geta tryggt sig inn á annað Evrópumótið í röð. Sara átti frábæran leik þegar íslenska liðið vann 3-1 sigur á Noregi í fyrri leiknum á Laugardalsvellinum fyrir ári síðan. „Við spiluðum frábærlega í fyrri leiknum og kláruðum hann eiginlega í fyrri hálfleik. Við vörðumst vel í seinni hálfeik og beittum skyndisóknum sem við þurfum að gera líka vel á morgun. Þetta er bara úrslitaleikur og þær eru á heimavelli. Þetta mun samt bara snúast um það hvaða lið vill þetta meira. Ég vona að allir leikmenn í okkar liði vilji þetta meira en þær," sagði Sara. „Við munum ekki einblína á öryggisnetið heldur að ná þessum þremur stigum. Ég veit að okkur nægir jafntefli en mig langar ekkert að gera eitthvað jafntefli. Ég vil bara vinna þær. Við höfum sýnt það oft og í mörgum leikjum að við eigum heima á þessum stórmótum. Við ætlum að sýna það aftur á morgun," sagði Sara Björk:
Fótbolti Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Fleiri fréttir Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Sjá meira