Umfjöllun: Noregur - Ísland 2-1 | Grátlegt tap í Osló Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. september 2012 14:19
Ísland þarf að fara í umspil til að komast í úrslitakeppni EM í Svíþjóð á næsta ári. Þetta varð ljóst eftir afar svekkjandi tap fyrir Noregi ytra í kvöld. Norðmenn skoruðu tvö mörk gegn gangi leiksins undir lok fyrri hálfleiks en íslenska liðið hafði verið mun meira með boltann, án þess þó að skapa sér mörg hættuleg færi. Það sama var upp á teningnum í síðari hálfleik nema að sóknarþunginn jókst enn fremur eftir því sem leið á leikinn. Íslenska liðið uppskar svo mark eftir frábæra sókn sem lauk með draumamarki Margrétar Láru Viðarsdóttur. En nær komust stelpurnar okkar ekki og því ljóst að þær þurfa að fara í umspil til að komast á EM á næsta ári. Ísland byrjaði leikinn af krafti og fór strax í sókn á fyrstu sekúndum leiksins. Það gaf tóninn því íslensku leikmennirnir voru mikið með boltann og reyndu ítrekað að finna leið fram hjá norsku vörninni, sem reyndist þrautinni þyngri. Reyndar átti Ísland ekki almennilegt færi allan fyrri hálfleikinn en Norðmenn svo sem ekki heldur. Það er að segja þar til á 39. mínútu er Bibiana Steinhaus, þýskur dómari leiksins, dæmdi aukaspyrnu á íslenska liðið utarlega á hægri kantinum. Sending kom inn í teig þar sem Marin Mjelde var óvölduð og skallaði boltann í netið af stuttu færi. Hafi þetta mark verið reiðarslag fyrir íslenska liðið var enn verra í vændum aðeins tveimur mínútum síðar. Norðmenn komust í sókn, sending kom inn í teig frá hægri kantinum og Elise Thorsens afgreiddi knöttinn í markið með föstu skoti. Íslensku leikmennirnir mættu enn grimmari til leiks í síðari hálfleik enda ekki annað í boði. Stelpurnar voru þó enn í vandræðum með að skapa sér færi en eftir að Margrét Lára braut ísinn á 65. mínútu opnaðist leikurinn nokkuð. Íslenska markið var stórglæsilegt, bæði undirbúningurinn sem og afgreiðslan. Edda Garðarsdóttir átti þátt í uppspilinu, sem og Katrín Ómarsdóttir sem lagði boltann fyrir Margréti með frábærri hælsendingu. Margrét Lára fékk boltann rétt utan vítateigs og skoraði með hnitmiðuðu skoti. Tveimur mínútum síðar var Margrét Lára nálægt því að vinna boltann af norska markverðinum eftir fyrirgjöf Fanndísar en eftir það þéttu Norðmenn varnarmúr sinn enn frekar sem gerði íslenska liðinu erfitt fyrir. Stelpurnar fóru að beita háum sendingum sem báru lítinn árangur. Norðmenn fengu reyndar besta færið eftir íslenska markið þegar að sóknarmaðurinn Herlovsen slapp í gegn eftir mistök í miðjuspili íslenska liðsins. Sú norska setti þó boltann framhjá, ein gegn Þóru markverði. Varnartaktík norska liðsins gekk upp því leikurinn fjaraði út eftir þetta. Norðmenn fögnuðu vel og innilega en íslensku stelpurnar gengu niðurlútar af velli. Þær fá þó annað tækifæri til að koma sér á EM en þær taka þátt í umspili eftir rúman mánuð.
Fótbolti Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn Fleiri fréttir HK lagði tíu Þróttara og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Sjá meira