Fótbolti

Margrét Lára í byrjunarliði Íslands

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Margrét Lára Viðarsdóttir er í byrjunarliði Íslands sem mætir Noregi ytra í undankeppni EM 2013.

Alls eru tvær breytingar gerðar á liðinu sem vann Norður-Írland, 2-0, um helgina. Rakel Hönnudóttir leikur í stöðu hægri bakvarðar í stað Dóru Maríu Lárusdóttur.

Það má búast við því að íslenska liðið verði varnarsinnaðra en um síðustu helgi. Edda Garðarsdóttir og Katrín Ómarsdóttir verða varnartengiliðir og Sara Björk Gunnarsdóttir fyrir framan þær.

Margrét Lára spilar svo sem fremsti sóknarmaður en Elím Metta Jensen leysti þá stöðu um síðustu helgi.

Byrjunarliðið:

Markvörður:

Þóra B. Helgadóttir

Varnarmenn:

Rakel Hönnudóttir

Sif Atladóttir

Katrín Jónsdóttir

Hallbera Guðný Gísladóttir

Miðjumenn:

Katrín Ómarsdóttir

Edda Garðarsdóttir

Sara Björk Gunnarsdóttir

Sóknarmenn:

Fanndís Friðriksdóttir

Hólmfríður Magnúsdóttir

Margrét Lára Viðarsdóttir


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×