Sér bara hryðjuverk 10. nóvember 2012 11:00 Basher al Assad Sýrlandsforseti í viðtali við rússneska sjónvarpsstöð. nordicphotos/AFP „
Það er engin borgarastyrjöld hjá okkur,“ segir Bashar al Assad Sýrlandsforseti í viðtali við rússneska sjónvarpsstöð. Hann segir stjórnarherinn eingöngu eiga í stríði við hryðjuverkamenn sem njóti stuðnings frá útlöndum. „Þetta er ný tegund af stríði,“ segir hann og heldur því fram að ýmist Sýrlendingar eða útlendingar stundi hryðjuverk í Sýrlandi fyrir hönd annarra landa. Til þess að ljúka stríðinu þurfi ekki annað en að önnur lönd hætti að senda uppreisnarmönnunum vopn: „Ég fullyrði að við getum klárað allt á nokkrum vikum.“ Leiðtogar Vesturlanda, Arababandalagsins og fleiri landa víða um heim hafa fordæmt hernað stjórnar Assads gegn uppreisnarmönnum, og jafnframt lýst yfir mismiklum stuðningi við uppreisnina. Uppreisnarmenn skiptast hins vegar í ólíka hópa sem hafa átt í margvíslegum deilum innbyrðis. Leiðtogar helstu hópanna sitja hins vegar á fundi í Katar þar sem þeir reyna að koma sér saman um nánara samstarf. Átökin í landinu hafa kostað 36 þúsund manns lífið. Nokkur hundruð þúsunda hafa flúið land, flestir til Tyrklands, Jórdaníu, Egyptalands, Íraks og Líbanon.- gb
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent Fleiri fréttir Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Sjá meira