Erlent

Fjölskylda Whitney Houston óttast grafræningja

Fjölskylda söngkonunnar Whitney Houston hefur ráðið öryggisverði allan sólarhringinn til að vakta gröf Houston í New Jersey vegna ótta um að grafræningjar muni láta þar geipar sópa.

Óttinn er ekki ástæðulaus því Houston var grafin með töluverðu af skartgripum sínum og er talið að verðmæti þeirra nemi um 300.000 dollurum eða hátt í 40 milljónum króna. Þá er gullslegin kista Houston talin vera fleiri tuga þúsunda dollara virði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×