Erlent

Upprættu smyglhring sem smyglaði nashyrningahornum

Lögreglan í Bandaríkjunum hefur upprætt smyglhring sem sérhæfði sig í að smygla nashyrningahornum milli landa.

Sjö menn voru handteknir í fjórum ríkjum Bandaríkjanna en rannsókn málsins hefur staðið yfir í hálft annað ár.

Auk þess var lagt hald á 20 nashyrningahorn og um eina milljón dollara í gulli, demöntum og reiðufé en þessi verðmæti eru talin afrakstur sölu á nashyrningahornum.

Nashyrningar eru í mikilli útrýmingarhættu en horn þeirra eru talin margra meina bót í Asíu og víðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×