Erlent

Einmana dauði í Japan

Íbúðin í borginni Saitama sem fólkið fannst í.
Íbúðin í borginni Saitama sem fólkið fannst í. mynd/AP
Lögreglan í Japan fann þrjú lík í íbúðarhúsnæði í borginni Saitama fyrr vikunni. Fundurinn er sagður tengjast honum svokölluðu „einmana dauðsföllum" sem verða sífellt algengari í Japan.

Talið er að líkin séu öll úr sömu fjölskyldunni - aldraðir foreldrar og sonur á þrítugsaldri. Ekki er vitað með vissu hversu lengi líkin höfðu verið í íbúðinni.

Talsmaður lögreglu sagði að lokað hafi verið rafmagn í íbúðinni fyrir nokkrum mánuðum. Enginn matur var í íbúðinni og lítið sem ekkert af peningum.

Fréttamiðlar í Japan greindu frá því í dag að fjölskyldan hafi leitað til nágranna sinna eftir fjárhagsaðstoð. Þeim var þó neitað um aðstoð og var bent á að hafa samband við félagsaðstoð.

Fjölskyldan gerði það þó ekki. Talið er að fjölskyldan hafi ekki viljað upplifa þá smán sem fylgdi því að leita til hins opinbera eftir aðstoð.

Þrátt fyrir að Japan sé þriðja ríkasta þjóð veraldar þá eru atvik sem þessi tiltölulega algeng. Dauðsföllin eru kölluð „kudokushi" eða „einmana dauði."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×