Erlent

Fyrirskipar opinbera rannsókn á morðum á námuverkamönnum

Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku.
Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku.
Forseti Suður-Afríku hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á ofbeldinu sem átti sér stað við hvítagullsnámuna í Marikana í vikunni. Þá skutu lögreglumenn á þrjú þúsund námumenn sem voru í verkfalli og kröfðust hærri launa frá vinnuveitanda sínum, námufyrirtækinu Lonmin.

34 létust þegar lögreglan hóf skothríð en 78 særðust. Lögreglan heldur því fram að mótmælendur hafi skotið á lögreglu að fyrra bragði og þeir þá svarað skotárásinni með fyrrgreindum afleiðingum.

Málið hefur vakið upp mikla reiði í Suður-Afríku en forsetinn lýsti yfir þjóðarsorg vegna málsins í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×