Eiður Smári aldrei byrjað betur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2012 06:00 Nordic Photos / Getty Images
Eiður Smári Guðjohnsen hefur farið á kostum í fyrstu leikjum sínum með Cercle Brugge í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og skoraði um helgina sitt fimmta deildarmark í hinum græna búningi Cercle. Eiður Smári skoraði í fyrstu fjórum leikjum sínum með félaginu og fimmta markið kom í hans sjöunda leik. Eiður Smári kom Cercle þá í 2-1 í 3-1 sigri á Genk en Genk er í hópi efstu liðanna. Markið hans um helgina kom eftir frábæran sprett Eiðs upp völlinn og þríhyrningaspil við samherja. Eiður Smári er orðinn 34 ára gamall en hann hefur ekki byrjað betur hjá neinu af þeim ellefu félögum sem hann hefur spilað áður með á ferlinum. Eiður hafði mest áður skorað tvö mörk í fyrstu sjö deildarleikjum sínum en því náði hann með Val 1994, með Bolton í ensku b-deildinni 1998 og hjá Barcelona 2006. Eiður Smári er þegar búinn að jafna met sitt eftir fyrstu tíu leikina en hann skoraði fimm mörk í fyrstu tíu leikjunum með Barcelona 2006. Eiður Smári hefur þrjá leiki til þess að bæta við það en hann skoraði fjögur mörk í fyrstu tíu deildarleikjunum með Val og Bolton. Byrjun Eiðs Smára með Barcelona var einnig mögnuð hvað það varðar að hann lagði upp, auk markanna fimm, fjögur mörk fyrstu mánuði sína í búningi Barca og Börsungar unnu alla leikina nema einn. Fimmta markið hans það tímabil kom í lok nóvember en var jafnframt síðasta deildarmarkið sem hann skoraði á tímabilinu 2006-07. Eiður Smári hefur nú fundið skotskóna sína aftur sem má kannski segja að hafi verið týndir í fimm ár. Eiður Smári hefur skorað jafnmörg mörk fyrstu sex vikur sínar með Cercle og hann gerði til samans undanfarin fjögur tímabil með Barcelona, Mónakó, Tottenham, Stoke, Fulham og AEK Aþenu (5 mörk í 68 leikjum). Bestu markatímabilin hjá Eiði Smára voru með Bolton í ensku b-deildinni 1999-2000 og með Chelsea í ensku úrvalsdeildinni 2001-02 en bæði þessi tímabil skoraði hann 14 mörk. Hann á að baki fimm tímabil með tíu mörk eða fleiri (fjögur með Chelsea) en það er líklegt að þau verði orðin sex haldi okkar maður uppteknum hætti í Belgíu. Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands, fylgist líka örugglega vel með Eiði Smára sem hefur lýst yfir áhuga á að spila áfram með íslenska landsliðinu og reyna að bæta við markamet sitt sem stendur nú í 24 mörkum. Cercle Brugge er í fallsæti í belgísku deildinni en liðið hefur náð í fjögur stig út úr tveimur síðustu leikjum sínum. Næstu fjórir leikir liðsins eru á móti liðum í efri hluta deildarinnar og það því ljóst að liðið þarf á snilldartöktum Eiðs Smára að halda í þeim leikjum.
Fótbolti Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti Fleiri fréttir Langar að taka pásu frá landsliðinu Freyr sáttur eftir draumabyrjun: „Finn fyrir gleði og létti“ Villa að stela Manzambi af Newcastle Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ted Lasso-leikari spilaði sinn fyrsta leik í bandarísku B-deildinni Infantino spenntur fyrir því að fjölga liðum á HM í 64 Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Enska landsliðið þurft að ferðast mest allra liða Ánægður með frammistöðu heimsmeistaramótsins Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni „Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“ „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Magnaður Sveinn Margeir: „Við eigum fullt inni“ Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Segir FIFA skoða að fjölga liðum á HM í 64 Uppgjörið: Fram - Þór 6-1 | Framarar settu upp sýningu Draumabyrjun Freys hjá norska stórveldinu Sjáðu Róbert Frosta tryggja GAIS dísætan sigur „Mikil saga og mikill sársauki“ Sjá meira