Skrefi nær alvöru huliðshjálmi 16. nóvember 2012 10:00 Þótt rannsóknum á því hvernig gera megi hluti ósýnilega hafi fleygt fram á síðustu árum eru huliðsskikkjur eins og sú sem Harry Potter á enn fjarlægur draumur.
Vísindamönnum við Duke-háskóla í Bandaríkjunum tókst nýverið að hylja nokkurra rúmsentímetra demantslaga hylki fullkomlega í tilraun. Er þetta í fyrsta sinn sem tekst að gera hlut algjörlega ósýnilegan. Fjölmargar tilraunir hafa verið gerðar á síðustu árum þar sem reynt hefur verið að sveigja ljós eða bylgjur fram hjá hlutum klæddum ákveðnu efni þannig að þeir verði ósýnilegir. Þar til nú hefur hluti ljóssins þó ávallt endurspeglast með þeim afleiðingum að það svæði þar sem hlutinn er að finna lítur út fyrir að vera dekkra en umhverfið í kring. Það gerðist hins vegar ekki í nýju tilrauninni. Það er þó ekki þar með sagt að hægt verði að kaupa huliðshjálma í verslunum á næstunni. Sá galli er nefnilega á gjöf Njarðar að viðkomandi hlutur er einungis ósýnilegur úr einni átt auk þess sem enn er bara mögulegt að fela hann með örbylgjum en ekki sýnilegu ljósi. Hlutir sem eru huldir með þessari tækni eru því eftir sem áður sýnilegir mönnum þótt þeir geti til að mynda orðið ósýnilegir gagnvart radar-tækni. David Smith, einn vísindamannanna, telur tilraunina þó stórt skref fram á við. „Í fyrri rannsóknum hafa ekki verið búnir til nytsamlegir huliðshjálmar. Þessi gæti hins vegar reynst nytsamlegur,“ sagði Smith eftir tilraunina og bætti við: „Ég held að það sé klárlega hægt að byggja á þessari rannsókn.“ - mþl
Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Sjá meira