Bandaríkin verða aðalolíuveldið 12. nóvember 2012 23:45 Barack Obama Bandaríkjaforseti var í kosningabaráttunni bjartsýnn á framtíð Bandaríkjanna í orkumálum. nordicphotos/AFP „
Bandaríkin eru í fararbroddi víðtækra breytinga í olíu- og gasframleiðslu, sem munu hafa áhrif í öllum heimshlutum,“ sagði Maria van der Hoeven, yfirmaður Alþjóðlegu orkumálastofnunarinnar, þegar ný skýrsla stofnunarinnar um horfur í þróun orkumála var kynnt í London í gær. Í skýrslunni er því spáð að í byrjun næsta áratugar verði Bandaríkin farin að framleiða meiri olíu en nokkurt annað land. Upp úr 2030 er svo talið að Bandaríkin verði farin að flytja út meiri olíu en þau kaupa af öðrum löndum. Þá spáir stofnunin því að næstu áratugina verði hægt að ná fram stórauknum orkusparnaði, „þannig að árið 2035 verði orkusparnaður í heiminum orðinn nærri jafnmikill og fimmtungur heildareftirspurnarinnar var árið 2010.“ Stofnunin telur að strax árið 2015 verði endurnýjanlegir orkugjafar orðnir næststærsta orkulind jarðar, næst á eftir kolum, og árið 2035 verði þeir orðnir nánast jafn mikilvægir og kolin. Enn fremur spáir stofnunin því að olíuverð muni smám saman lækka á næstu árum og verði komið niður í 89 dollara á tunnuna árið 2015. Þessu síðasta er að vísu spáð með þeim fyrirvara að verðsveiflur geti orðið vegna efnahagsörðugleika eða stjórnmálakreppu í sumum helstu olíuframleiðsluríkjunum. - gb
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Ekkert lát á árásum Bandaríkjann og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Sjá meira